Vitiði. Mér finnst rosalega gaman að vinna.
Ég er rosa sátt við starfsgreinina sem ég hef valið mér.
Það er alltaf fólk í kringum mig. Ný andlit á hverjum degi. Skemmtilegar samræður við fólk sem að kemur frá hinum ýmsu stöðum. Hvort sem það séu gestir eða samstarfsfélagar.
Einn uppvaskarinn hérna er frá Nepal. Í gær var gestur hérna frá Guatemala. Í kvöld er annargestur frá Jórdaníu. Einn þjónninn hérna er frá Chile.
Ég hef möguleika á því að hitta fólk frá mismunandi heimsálfum á hverjum degi. Og mér finnst það frábært.
Ég þoli ekki að láta mér leiðast. og að sjá alltaf sama fólki alla daga og vera alltaf á sama stað gerir mig pirraða og einhvernvegin öðruvísi. Ég þarf þessa fjölbreytni.
Það er farið að kólna hérna í köben. í dag var 2 stiga hiti. brrr...
Ég ákvað að tríta mig þar sem ég er soldið smeik við að hjóla þegar það er frost, eins og vill oft vera snemma á morgnanna. Keypti mér strætókort.
Og vá hvað ég sé ekki eftir því. Nú er svo miklu minna mál að koma sér úr húsi. Áður var ég aldrei að nenna því að hjóla í hálftíma og vera svo föst með hjólið einhverstaðar.
Núna bara bimmbammbúmm og ég er komin niðrí bæ, fer aftur heim, og svo aftur niðrí bæ.
SVo er líka svo gaman að vera í metróinu eða strætó. Fullt af skrítnu fólki... thíhí.
laters
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment