Já, og það er svo gaman.
Eftir að hafa setið atvinnulaus á rassinum og drukkið hvítvín í mánuð, þá er það vel þegið að hafa eithvað að gera.
Ég fékk aukavakt á laugardaginn við að þjóna og svo voru bættir 2 tímar á dag við mig alla vinnudagana mína.
Sem að þýðir náttúrulega meiri meiri peningar. vúllalalla.
Ég er svo að fíla að vinna hérna á NIMB.
En eins og er þá er ég bara með vinnu fram að áramótum. Þau voru búin að ráða næturvörð eftir áramót, plús þá vil ég ekki vinna endalaust á næturvöktum.
Ég er að vonast eftir að þau finni til fyrir mig dagvaktir. En eins og er, þá er enginn að hætta. Nema ein stúlka í mars. Sem er soldið langt þangað til.
Þannig ég veit ekki alveg hvað gerist núna í janúar. Ef einhver er með uppástungu, let mí knóv.
Fór á hestbak á laugardaginn. Silvia, austurísk fjölskylduvinur sem að býr hérna í köben reddaði því. ahh. Það var yndislegt.
Svo gott að komast útí náttúruna aðeins og á bak. Þó svo að hesturinn hafi ekki verið uppá sitt besta.
Nú stefni ég að því að reyna að fara einusinni í viku á bak.
allavega.. þar til næst.
Polly
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment