Wednesday, December 3, 2008

Nýr dagur nýtt blaður



The silent guy kom til mín áðan og sagði við mig á lélegri ensku að hann væri að hætta.
Það var einhver gamall gráhærður kall að vinna með honum í allt kvöld og ég var einmitt að spá í afhverju.
Þannig takmarkið mitt að fá hann til að tala er nú farið útum þúfur.
Nú þarf ég að finna mér eithvað annað takmark. Ég verð nú að hafa eithvað á þessum næturvöktum þar sem ég geri samasem ekkert. Hangi á netinu mest alla nottina. Prenta út nokkrar skýrslur og set upp morgunverðinn. Ekki mikið verk á 13 herbergja hóteli :)

Það eru 2 veitingastaðir hérna. Einn sem er svona semi casual en ofsalega vinsæll. Tekur c.a. 10 daga að fá borð. Svo er það restaurant Hermann. Þeir eru að vonast eftir Michelin star, eithvað sem sama sem enginn veitingarstaður fær á fyrsta ári opnunar, en lítur út fyrir að þeir séu að fá það. Deitið mitt um daginn er yfirþjónninn þar :)
Svo er það barinn uppá efri hæðinni, þar sem öll hótelherbergin eru. Éttlað athuga hvort ég finni ekki mynd af honum. Rosalega fallegur.
Svo er það Vinotek niðrí kjallara. Það er svoldið rosalega sérstakt. Þeir hönnuðu staðinn þannig að það líti út einsog alvöru vínkjallari. Loftið og gólfið er ójafnt og þeir fluttu inn hellur frá frakklandi fyrir gólfið. Það er frekar svalt þar inni og svona alvöru kjallara lykt.
Það eru svona viðarbekkir sem sæti og viðarborð. og sitthvorumeginn á veggjunum eru vínskápar með endalaust flottum og dýrum vínum. Dýrasta vínflaskan kostar 40.000dkk.
Rugl!
Það eru 2 strákar sem vinna niðrí vinotek og þeir eru alveg frábærir. Ég rölti alltaf niður á kvöldin, því þeir eru alltaf seinastir út. Kjafta við þá í smástund. Fæ mér kanski eitt vínglas.
Þeim finnst voða gaman að tala um vínin sín og það er náttúrulega frábært að fá að inbyggja eithvað að þeim fróðleik sem þeir hafa uppá á bjóða.

Ég er orðin svo ástfangin af þessum stað sem ég er að vinna á. Ég vona vona vona að ég fái áframhaldandi vinnu eftir áramót.
Allir að krossleggja fingur fyrir mig :)

Laters
Polly

2 comments:

Anonymous said...

Frábært að allt gangi vel og vona ég svo innilega að þú fáir starf eftir áramót ;o)
Gangi þér vel á deit lífinu og já takk æðislega vel fyrir frábært kvöld í október ;o)
B.kv. Karen

Anonymous said...

Gangi þér vel sætust.
kiss og klem, Lea