Sunday, November 30, 2008

gjéggjuð helgi

Ég er alveg farin að komast inní lífið hérna og fíla það í tætlur.
Eftir að hafa eitt ári á Búðum þar sem maður sá eiginlega bara vinnufélagana, með einstaka stoppi í bænum að hitta vinkonur, þá er þetta mannlíf alveg æðislegt.
Mér finnst svo frábært að fara í almenningssamgöngurnar og rölta um bæjinn og hverfa inní fólksfjöldann.

Fór út með vinnufélögunum á fimmtudaginn. Það var frábært alveg. Hittumst fyrst hérna niðrá vínbar og drukkum hvítvín og spjölluðum.
Fórum svo á stað sem var með life tónlist og síðan á pöbb sem var opinn aðeins lengur.

Vanalega þegar ég fer út þá hef ég farið á hjólinu mínu, þannig það sé auðvelt að koma sér heim eftir að strætó hættir að ganga. En þegar ég fór útúr húsi á fimmtudaginn þá var rigning þannig ég ákvað að taka frekar strætó, þar sem ég var í gelluoutfitti :p og sá framá að taka bara nightbus heim.
Nema það að ég náttúrulega gleymdi að athuga hvaða night bus ég ætti að taka og hvaðan.
Svo á ég náttúrulega engann pening þannig það var ekki möguleiki á að komast heim í leigubíl.
Ekki alveg skemmtilegast að uppgvöta það svona alltíeinu að maður hefur ekki hugmynd hvernig maður kemst heim.
Það samt reddaðist á endanum.

Á föstudaginn tók ég stórt skref í því að njóta þess að vera single í stórri borg. Mér var nefnilega boðið á deit. Útað borða á D´Anglaterre hótelinu.. mmm.. það var æðislegt. Byrjaði á kampavíni, fékk svo humar í forrétt, Önd með Foi gras í aðalrétt sem að skolað var niður í með æðislegu rauðvíni. Ahh það hefur sína kosti stundum að vera stelpa :)

Laters

2 comments:

Anonymous said...

Og hvernig komstu heim hehehe ? Vá geggjað deit, öfunda þig sko ekkert. Kveðja Erna

Anonymous said...

Loose [url=http://www.greatinvoices.com]create an invoice[/url] software, inventory software and billing software to create masterly invoices in minute while tracking your customers.